top of page

HEIMA

ÍSLENSKIR ELDMIÐIR
ELDSMIÐJAN AÐ GÖRÐUM

Áhugamannafélagið Íslenskir Eldsmiðir var stofnað árið 2009 og hefur aðsetur í Byggðasafninu að Görðum á Akranesi. Þar byggðum við myndarlega eldsmiðju árið 2013, og hefur það gjörbreytt öllum forsendum félagsins til að vaxa og dafna. Smiðjan fellur vel inn í umhverfið við safnasvæðið og þar höldum við reglulega námskeið. Einnig fáum við reglulega í heimsókn meistarasmiði frá ýmsum löndum til að efla þekkingu okkar og færni í faginu.

P1020441.JPG

Í júní hvert ár er haldin vegleg smíðahátíð, þar sem við komum saman og stingum saman steðjum og eigum góða og skemmtilega daga við smíðar og lagfæringar. Endahnykkurinn á hátíðinni er svo keppni í eldsmíði sem er í leiðinni eins konar óformleg keppni í eldsmíði.

20190602_105903.jpg
bottom of page