top of page

ferðasmiðja

Með smiðju í farangrinum

Sem handverksmanni finnst mér nauðsynlegt að leita út á við öðru hvoru og taka þátt í viðburðum og uppákomum af ýmsu tagi. Sérstaklega skemmtilegt finnst mér að heimsækja skóla og leyfa nemendum, stórum sem smáum að upplifa handverk í nærmynd og jafnvel að prófa að smíða eitthvað smálegt, krók eða nagla.

Í tvo áratugi hef ég reglubundið dúkkað upp með smiðjuna í farangrinum hér og þar um landið og miðin, og vonandi bætast við fleiri staðir í sarpinn áður en langt um líður. Hér fyrir neðan er nokkrar svipmyndir.

JÓLAMARKAÐURINN VIÐ ELLIÐAVATN

SKÓGARLEIKARNIR Í HEIÐMÖRK

Í Furulundi í Heiðmörk heldur Skógræktarfélag Reykjavíkur árlega uppá Skógarleikana. Í boði er fjölbreytt dagskrá fyrir börn og fullorðna. Keppt er í axarskafti og stauraklifri og krakkarnir tálga í tré og naga strá ef svo ber undir.

Ég setti upp ferðasmiðjuna mína á góðum stað og sýndi gestum og gangandi handverkið og handtökin við smíðina. Fyrir þá allra áhugasömustu smíðaði ég laufblað og ristaði gómsætar möndlur með sætu hugarangri.

AKKERI 3

JÓLAMARKAÐURIN VIÐ ELLIÐAVATN

AKKERI 2

Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur árlega fyrir Jólamarkaði við Elliðavatn. Þar er ávallt margt í boði um aðventuna fyrir gesti og gangandi, kaffihús, söngur, dans og upplestur. Fjölbreytt handverk er til sölu á hóflegu verði og ýmsar uppákomur að hætti jólasveina og eldsmiða setja skemmtilegan svip á markaðinn og á unga sem aldna sem heimsækja þennan dásamlega stað.

Anchor 1
DALSKÓLI 

Ég heimsótti krakkana í Dalskóla veturinn 2016. Við vorum mjög heppinn með veður þó kalt væri, og áttum við góða stund við smiðjuna þar sem einbeitingin og gleðin skein úr hverju andliti eins og myndirnar sýna glöggt.Að því loknu var lummudeginu snarað fram og allir gæddu sér á eldbökuðum lummum í eftirrétt. Takk fyrir mig!

BREIÐAGERÐISSKÓLI

Það var sérstök upplifun fyrir mig að heimsækja Breiðagerðisskóla. Ég var nemandi þar á síðöldum fyrir kristsburð, og margt hefur breyst síðan þá. Í þetta sinn var ég ekki sendur til skólastjórans í yfirhalningu, heldur fékk ég frjálsar hendur og fætur og kom mér fyrir í lundi bakvið skólann með ferðasmiðjuna og ýmiskonar dýrgripi. Fjöldi barna kom í heimsókn og fékk leiðsögn yfir handverk, áhöld og hráefni sem var til sýnis. Að því loknu var kynnt undir kolunum og gefin hnitmiðuð tilsögn í eldsmíði. Þess ber að geta að því miður brenndi sig enginn.

AKKERI 4
bottom of page