
heima
kveikjum eld
H
Handverk er að sjálfsögðu besta og skemmtilegasta leiðin til að brjótast út úr höfðinu á sér um stund og fá í leiðinni smá breik í dagsins önn, og skapa eitthvað fallegt og einstakt í leiðinni og jafnvel eitthvað nýtilegt fyrir sjálfan sig eða aðra. Ástundun og endurtekning er mikilvægur þáttur í þeirri vegferð, sem verður hvorki mæld né veginn í Kauphöllinni á Wall Street.
Við Íslendingar eigum okkur langa og magnaða handverkshefð aftur í gráa forneskju. Og þrátt fyrir að við séum með allt niðrum okkur í dag hvað þetta varðar, þá er enn nóg af kjöti á beinunum til að naga. Þessa þekkingu og visku er vel hægt að nýta til að hressa uppá stemminguna á tímum gervigreindar og taka upp forna iðju og lífshætti að nýju sér til ánægju og yndisuka Þar má til dæmis nefna; bókband og bændaglímu, eldsmíði og ullarþæfingur, sútun og landabruggun svo eitthvað sé nefnt.


